Það væri frábært að fá hundagerði í Garðabæ
Það er ekkert hundagerði í Garðabæ
Eina hundasleppisvæðið í Garðabæ er í raun í Hafnarfirði - langflestir íbúar Garðabæjar þyrftu að keyra þangað á meðan að íbúar norðurbæjar Hafnarfjarðar geta gengið þangað og notið að vera á Bala með hundana. Það væri mjög gott að hafa hundasleppisvæði (í fleirtölu) í Garðabæ í göngufjarlægð frá flestum hverfum. Sleppisvæðið á Selfossi (við Suðurhóla) er t.d. dæmi um það sem mér finnst vera mjög vel útfært hundasvæði
Væri mjög góð þjónusta fyrir hundafólk. Margir eru að nota afgirtan fótboltavöll milli Hraunhóla og Flata en það er ekki hugsað fyrir ferfætlinga. Væri gott að fá afgirt svæði sem mætti líka vera búið tækjum til að æfa hundana í Aquility ..
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation